Back to jobs

Reynslumikill vélaverkfræðingur – verkefnastjóri

Reynslumikill vélaverkfræðingur – verkefnastjóri

Starfslýsing Ber ábyrgð á afhendingu allra vélbúnaðarkerfa sem tengjast uppbyggingu gagnavers, þar á meðal kælikerfi, loftræstikerfi, kælivatnskerfi, brunavarnir og öðrum mikilvægur vélrænum innviðum. Hlutverkið felst í því að tryggja að vélræn kerfi verði afhent á öruggan hátt á áætluðum tíma og tilbúin fyrir gangsetningu og yfirtöku.

Reference
Vel 5001
Location
Iceland North Coast
Employment type
Full-time
Discipline
Reynslumikill vélaverkfræðingur – verkefnastjóri
Salary
samningsatriði
Posted
28 Sept 2026

About the role

Starfslýsing: Ber ábyrgð á afhendingu allra vélbúnaðarkerfa sem tengjast uppbyggingu gagnavers, þar á meðal kælikerfi, loftræstikerfi, kælivatnskerfi, brunavarnir og öðrum mikilvægur vélrænum innviðum. Hlutverkið felst í því að tryggja að vélræn kerfi verði afhent á öruggan hátt á áætluðum tíma og tilbúin fyrir gangsetningu og yfirtöku. Vinnur náið með yfir-verkefnastjóra (product director) framkvæmdarinnar og fjölbreyttu leiðtogateymi verkefnisinsog veita forystu gagnvart verktökum, ráðgjöfum, fulltrúum viðskiptavina og hagsmunaaðilum verkefnisins. Starfsheiti: Reynslumikill vélaverkfræðingur Næsti yfirmaður: Framkvæmdastjóri framkvæmda Staðgengill: Skipulagseining: Hæfniskröfur • M.Sc. or B.Sc í vélaverkfræði eða sambærilegri grein. • Að lágmarki 10 ára reynsla á sviði vélkerfa í stórum verkefnum. • Reynsla af kælikerfum, HVAC, brunakerfum og mikilvægum innviðum. • Reynsla af gagnaverum eða sambærilegum verkefnum er verulegur kostur. • Góð þekking á prófunarferlum kerfa. • Framúrskarandi leiðtogafærni og samskiptahæfni. • Góð enskukunnátta. Ábyrgð og helstu skyldur starfs: • Leiða alla framkvæmd vélkerfa frá upphafi til afhendingar. • Tryggja að framkvæmdir séu í samræmi við samningsgögn, hönnunargögn og kröfur verkkaupa • Ber ábyrgð á kostnaði, tímaáætlunum og gæðum innan síns ábyrgðarsviðs. • Leiða og samhæfa störf undirverktaka, birgja og annarra sérfræðinga. • Ábyrgð á innleiðingu á loftræstingu og kælikerfum. • Tryggja að vélbúnaðarkerfi séu afhent í samræmi við gangsetningar kröfur. • Styðja við prófanir, skoðanir og samþættingu kerfa. • Styðja við samþættingu milli mannvirkjagerðar, rafmagns kerfa og vélkerfa. • Greina áhættur, tafir og frávik og innleiða úrbætur. • Taka þátt í samningaumsjón, breytingastjórnun og framvinduskýrslugjöf. • Leiða gæðaeftirlit, úttektir og afhendingarferli. • Stuðla að framúrskarandi öryggismenningu á framkvæmdasvæðinu. Það sem er í boði • Samkeppnishæf laun • Húsnæði og samgöngur • Vinnutörn (rotation) • Flug til og frá Íslandi • Fartölva og sími Nánari upplýsingar veitir: Alan Wayne 📞 +354 775 7336

Apply for this role

Reviewed personally and in confidence.

Accepted: PDF, DOC, DOCX, RTF, TXT. Max 5MB.