Öryggisstjóri verks (ÖHU)
Öryggisstjóri verks (ÖHU)
tarfslýsing: Öryggisstjóri verks ber ábyrgð á samræmingu, eftirliti og eftirfylgni öryggis- og vinnuverndarmála á verkefninu.
- Reference
- Camp HSE 1002 IS
- Location
- Iceland North Coast
- Employment type
- Full-time
- Discipline
- Öryggisstjóri verks (ÖHU)
- Salary
- samningsatriði
- Posted
- 25 Sept 2026
About the role
Öryggisstjóri verks (ÖHU)
Starfslýsing: Öryggisstjóri verks ber ábyrgð á samræmingu, eftirliti og eftirfylgni öryggis- og vinnuverndarmála á verkefninu. Öryggisstjóri verks ber ábyrgð á daglegri innleiðingu og eftirfylgni öryggis- og vinnuverndarmála á tilteknu verkefni . Starfið felur í sér að styðja verkefnastjóra og verkstjórn í að tryggja örugga framkvæmd, draga úr slysum og atvikum og efla sterka öryggismenningu á verkstað. Öryggisstjóri verks starfar í nánu samstarfi við gæða- og öryggisstjóra Mannverks og tryggir að verklag og kröfur fyrirtækisins og verkkaupa séu uppfylltar.
Starfsheiti: Öryggisstjóri verks (HÖU)
Næsti yfirmaður: Product director
Staðgengill:
Skipulagseining: Á verkstað
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Reynsla af öryggisstjórnun í byggingar- og/eða iðnaðarframkvæmdum.
• Góð þekking á íslensku regluverki og alþjóðlegum stöðlum um vinnuvernd.
• Reynsla af áhættumati og frávikaskráningu.
• Sterk samskipta- og samstarfshæfni.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Góð færni í notkun tölvu, snjalltækja og stafrænna skráningarkerfa
Ábyrgð og helstu skyldur starfs:
• Tryggja að öryggis- og vinnuverndarkröfur Mannverks og verkkaupa séu innleiddar á verkefninu.
• Styðja verkefnastjóra og verkstjóra með ráðgjöf og eftirfylgni í öryggismálum.
• Tryggja að lögum, reglum og verkstaðarkröfum sé fylgt.
• Efla öryggismenningu, forvarnir og faglega vinnubrögð á verkstað.
• Fylgjast með frammistöðu í öryggismálum og stuðla að umbótum.
• Yfirfara áhættumat og lýsingar á vinnuaðferðum (RAMS) áður en vinna hefst og þegar breytingar verða á framkvæmd eða aðstæðum á verkstað.Framkvæma reglubundið vettvangseftirlit og öryggisúttektir.
• Tryggja skráningu og eftirfylgni frávika, slysa og atvika.
• Taka þátt í rannsókn slysa og innleiðingu úrbóta.
• Skipuleggja og halda utan um móttöku, öryggiskynningu og þjálfun starfsfólks Mannverks og undirverktaka.
• Kynna samþykktar öryggiskröfur verkefnisins fyrir undirverktökum og fylgja þeim eftir.
• Halda og taka þátt í öryggisfundum á verkstað.
• Vera tengiliður við verkkaupa, eftirlitsaðila og aðra aðila í öryggismálum.
• Veita verkefnastjórn og gæða- og öryggisstjóra reglulega upplýsingar um stöðu öryggismála, helstu áhættur og framvindu úrbóta..
Er í boði
• Verkefni til 2,5 ára eða lengur
• Vinnulotur (rotation) samkvæmt nánara samkomulagi
• Samkeppnishæf laun
• Gisting í vinnubúðum (camp accommodation)
• Flugferðir innifaldar
Fyrir frekari upplýsingar hafðu samband við Alan Wayne í síma eða á WhatsApp í +354 775 7336.
Mikilvæg tilkynning
Alan Wayne Recruitment mun aldrei biðja umsækjendur um fyrirframgreiðslur eða gjöld við umsókn um starf.
Ef einhver biður þig um að greiða peninga á einhverju stigi ráðningarferlisins, þá ert þú ekki í samskiptum við fulltrúa frá Alan Wayne Recruitment eða alanwayne.is. Vinsamlegast hunsið slíkar beiðnir og látið okkur vita tafarlaust.
Apply for this role
Reviewed personally and in confidence.